Alþjóðasamstarf

 

UMÍS ehf. Environice á sér trausta faglega bakhjarla um allan heim. Má þar nefna að framkvæmdastjóri fyrirtækisins er félagi í svonefndu IIIEE Network, sem hefur innan sinna vébanda um 400 sérfræðinga í rúmlega 100 löndum, sem allir hafa lokið meistaraprófi í stefnumótun og stjórnun umhverfismála.

 

Starf UMÍS ehf. Environice fyrir Norrænu ráðherranefndina hefur skapað tengsl við fjölmarga aðila sem vinna að umhverfismálum og sjálfbærri þróun á Norðurlöndunum og innan vébanda Evrópusambandsins. Í þessum hópi er einkum starfsfólk ráðuneyta og opinberra stofnana á sviði umhverfismála, en einnig tugir sérfræðinga við háskólastofnanir og ráðgjafafyrirtæki á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum.

 

Vegna verkefna sinna fyrir Samband íslenskra sveitarfélaga og umhverfisráðuneytið undir merkjum Staðardagskrár 21 hefur UMÍS ehf. Environice byggt upp tengsl við nokkur norræn sveitarfélög og samtök þeirra.

 

(Síðast uppfært 5. ágúst 2010)

 


 
  Forsíða
  Fréttir
  Um Environice
  Verkefni
  Fróðleikur
  Alþjóðasamstarf
  Mat á umhverfisáhrifum
  Útgáfa
  Fjallvegahlaup
  Hafðu samband
  Leit